Dæmi um hækkun: 10 ísstangir í pakka, var 330 kr en nú 735 kr.

Frábært hjá þessum hóp að gera þetta því verðlagið í krónunni er fáránlegt og er jafnvel nótatún ódýrari.  Ég á 7 ára strák sem elskar ís, ég hef í nokkur ár keypt Emmess ísstangir eða snjókarlaís eins og hann kallar það.  Fyrir ári síðan kostaði þessi ís 259 krónur, síðasta haust var þetta komið í um 330 krónur hvort sem það var í bónus eða krónunni. 

Fyrir um tveim vikum ætlaði ég að kaupa þennan ís í krónunni í Hafnarfirði en blöskraði verðið.  735 krónur og ég skoðaði aðrar vörur þá sem voru óeðlilega háar, fór þaðan í Nóatún sem er í höndum sömu eigenda og þar kostaði þessi ís 698 krónur.  Hann kostar 435 í Bónus í dag en annars versla ég yfirleitt í Fjarðarkaup og er margt ódýrara þar en t.d. í bónus.

 


mbl.is Mótmæltu hækkun vöruverðs í Krónunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vandamálið er hvernig Íslenskir birgjar og verslanir verðmerkja vörur...

Það er gert útfrá %

Þannig að vara sem kostar 100 krónur í innkaupum kostar kannski 200 krónur í sölu og í því verði á að vera kostnaður sem þarf til að reka búðina og borga fólki laun og ýmislegt annað.

Það svo sem gerist þegar krónan hrynur er að varan kostar kannski 200 krónur í innkaupum og hún fer þá sjálfkrafa upp í 400 krónur í sölu þó að eina raunverulega hækkunin er á vörunni sjálfri en ekki annar rekstrarkostnaður.

Hækkunin ætti að vera 100 krónur og varan myndi þá hækka í 300...en svo er það ekki.

Magnús Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 23:04

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

verzlaðu bara í Bónus Jónas

Jón Snæbjörnsson, 30.1.2009 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband