Leikur Vikunnar í NCAA - Miami@Florida
6.9.2008 | 21:01
Leikur vikunnar að þessu sinni í háskólaboltanum er viðureign Miami Hurricanes og Florida Gators. Miami háskóli er þekktur fyrir að koma með stjörnur í NFL og má t.d. nefna að hlaupararnir Willis MGahee, Clinton Portis og Frank Gore voru allir í sama Miami liði fyrir nokkrum árum. Það hefur hinsvegar gengið frekar ílla hjá Miami undanfarin ár en Florida eru með eitt besta liðið í háskólaboltanum og voru meistarar árið 2006.
Leikstjórnandi Florida Gators heitir Tim Tebow en hann hlaut Heisman bikarinn á síðasta ári, í liði Gators er einnig einn besti útherji háskólaboltans en sá heitir Percy Harvin. Þetta verður hörkuleikur og verður sýndur á NASN en útsending hefst kl 23:30 í kvöld. Það verður gaman að sjá hvort liðið fer með sigur af hólmi en Florida Gators hafa ekki sigrað Miami í síðustu 6 leikjum liðanna og verður því forvitnilegt hvort háskólinn sem færði okkur Gatorade drykkinn sigri í nótt.
Sjáið stjörnur framtíðarinnar í dag……….Háskólaboltinn.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.